Sunday, May 27, 2007

Blessað Gilfélagið

Gilfélagið er barn síns tíma stofnað af áhugafólki um uppbyggingu menningargötu Akureyringa (Listagilið) og var félagið kraftmikið og duglegt í upphafi. Fjöldi fólks kom að starfseminni og margar hendur unnu ómælda sjálfboðavinnu beð bros á vör, full af ákefð fyrir bjartri framtíð félagsins.

Með árunum hefur dofnað yfir starfseminni og fólkið sem þar starfaði hefur fundið sér aðrar leiðir til að koma sínum áhugaverkefnum á framfæri í gegnum sína eigin starfsemi laust við endalausar málamiðlunarlausnir til að gera öllum til hæfis.

Nú líður að aðalfundi Gilfélagsins og legg ég til að það verði lagt niður og þeim peningum (ef þeir eru þá enn til) sem það hefur haft verði notaðir til að byggja undir það blómlega menningarlíf og þá grósku sem er í bænum.

Jónas Viðar
.

1 comment:

Unknown said...

Ja hérna, Jónas Viðar. Ætlar þú að mæta á aðalfundinn? Gaman að lesa svona blogg og gott að sjá að þú liggur ekki á skoðunum þínum.
Kveðja frá kaffikærustunni - Tinna.